Bókasafnið í Sandgerði
Vörðunni, Miðnestorgi 3
245 Sandgerði
Sími: 420 7570 / 420 7571
Starfsfólk
Birna Jakobína Jóhannsdóttir forstöðumaður og Jóna Krístín Sigurjónsdóttir.
Afgreiðslutími
Bókasafnið er opið á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum kl. 13 – 18, fimmtudögum kl. 13 – 20 og föstudögum kl. 13 – 17.
Bókasafnsskírteini
Skírteinið kostar 900 kr. á ári fyrir fullorðna. Frítt er fyrir börn 16 ára og yngri, öryrkja og ellilífeyrisþega.
Útlánareglur
Meginreglur útlána eru þær að nýútgefnar bækur eru lánaðar í 10 daga en aðrar bækur í 30 daga. Tímarit eru lánuð í 15 daga. Sektir eru 10 kr. á dag fyrir hverja bók/tímarit.
Safnkostur
Í safninu er gott úrval bóka; barnabækur, skáldsögur, fræði- og handbækur, tímarit og dagblöð. Aukin áhersla verður á innkaup hljóðbóka í framtíðinni og stefnt að því að koma upp lesaðstöðu fyrir nemendur. Einnig er í safninu tölvuver með aðstöðu fyrir sex manns. Aðgangur í tölvuverið er innifalinn í skírteinum; ½ klst. fyrir börn og 1 klst. fyrir fullorðna á dag. Hægt er að kaupa staka tíma og kostar klukkutíminn 200 kr.
Önnur þjónusta
Farið er í heimahús ef fólk hefur ekki tök á að koma í safnið, t.d. vegna veikinda. Þá er bara að hringja í síma bókasafnsins og óska eftir þjónustunni. Einnig er hægt að hringja og fá framlengingu á bókalánum.
Einu sinni í viku fer starfsmaður safnsins með bækur í Miðhús, þjónustumiðstöð eldri borgara í Sandgerði.
Bækur eru teknar frá eftir óskum bókasafnsgesta. Gott samstarf er um millilán bóka við bókasöfnin í Garði, Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum.
Verið hjartanlega velkomin í notalegt og gott bókasafn okkar allra.